09.08.2019
kl. 09:48
Jóhanna Hafliðadóttir
Á næstu dögum mun fólk frá Blakdeild Hugins og fimleika- og körfuboltadeild Hattar ganga í hús á Seyðisfirði og á Egilsstöðum og Fellabæ til þess að safna undirskriftum til stuðnings Fjarðarheiðargöngum. Óskað verður eftir því að 18 ára og eldri riti nafn sitt undir áskorun bæjarstjórnar Seyðisfjarðarkaupstaðar.
Lesa
08.08.2019
kl. 15:37
Jóhanna Hafliðadóttir
Tour de Ormurinn hjólreiðakeppnin, sem haldin hefur verið frá árinu 2012 á Fljótsdalshéraði og í Fljótsdalshreppi, fer að þessu sinni fram laugardaginn 10. ágúst og eru rás- og endamark á Egilsstöðum. Hægt er að skrá sig í keppnina til 9. ágúst.
Lesa
06.08.2019
kl. 09:44
Jóhanna Hafliðadóttir
Nú er Hálslón orðið fullt og Jökulsá komin á yfirfall. Má því ætla að hún haldi sínum gamalkunna jökullit eitthvað fram eftir hausti, eða þar til innrennsli í lónið nær jafnvægi. Íbúar og ferðamenn eru beðnir um að hafa þetta í huga á ferðum sínum við Jölulsá á Dal.
Lesa
30.07.2019
kl. 11:40
Jóhanna Hafliðadóttir
Litla hafmeyjan syndir til okkar á Egilsstaði um helgina og verður sýningin í Lómatjarnargarði föstudaginn 2. ágúst klukkan 18:00. Það er því um að gera að grípa með sér teppi til að sitja á, nesti að maula og myndavél til að taka myndir með persónunum eftir sýninguna. Miðaverð er 2.500 krónur, frítt fyrir 2ja ára og yngri.
Lesa
22.07.2019
kl. 13:14
Jóhanna Hafliðadóttir
Minnt er á að hefðbundin sumarlokun bæjarskrifstofu Fljótsdalshéraðs er frá og með mánudeginum 22. júlí og til og með mánudagsins 5. ágúst. Á þeim tíma verða flestir starfsmenn skrifstofunnar í sumarleyfi. Þó verður svarað í síma á hefðbundnum opnunartíma skrifstofunnar og reynt að greiða úr brýnustu erindum.
Lesa
12.07.2019
kl. 17:00
Jóhanna Hafliðadóttir
Hefðbundin sumarlokun bæjarskrifstofu Fljótsdalshéraðs verður frá og með mánudeginum 22. júlí og til og með mánudagsins 5. ágúst. Þó verður svarað í síma á hefðbundnum opnunartíma skrifstofunnar og reynt að greiða úr brýnustu erindum.
Lesa
11.07.2019
kl. 10:19
Haddur Áslaugsson
Vegna sumarhátíðar verður ssundlauginn og stígar í Selskógi lokuð á meðan keppni stendur
Vegna sumarhátíðar UÍA verður sundlaugin lokuð til kl. 13:00 laugardaginn 13. Júlí. Sundmótið mun standa yfir frá kl. 9:00 til 13:00 og strax og því er lokið verður sundlaugin opnuð almenningi.
Einnig verður stígum í Selskógi lokað á meðan fjallahjólakeppni stendur
Lesa
10.07.2019
kl. 10:00
Jóhanna Hafliðadóttir
Urriðavatnssundið 2019 fer fram 27. júlí. Að venju verður ræst í víkinni við starfsstöð Hitaveitu Egilsstaða og Fella sunnan við vatnið. Í ár verða 2 sundleiðir, 500 m skemmti- og ungmennasund en núna verður ungmennum á aldrinum 12-17 ára í fyrsta sinn gefinn kostur á formlegri þátttöku. Aldrei hafa fleiri verið skráðir til keppni, en samtals eru rúmlega 250 manns skráðir, þar af 240 í Landvættasundið.
Lesa
09.07.2019
kl. 16:12
Haddur Áslaugsson
Ragnhildur Ásvaldsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Fljótsdalshéraðs. Ragnhildur er með MA gráðu í hagnýtri menningarmiðlun og B.A. próf í kvikmyndagerð
Lesa
05.07.2019
kl. 18:05
Hrund Erla
Í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi á Fljótsdalshéraði. Á fundi bæjarráðs Fljótsdalshéraðs þann 1. júlí 2019 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir miðbæ Egilsstaða.
Lesa