íþróttasvæði

Á Fljótsdalshéraði fer fram fjölbreytt íþróttastarfsemi og er þar góð aðstaða til ýmiskonar íþróttaiðkunar.

Helstu íþróttasvæðin eru:  

VilhjálmsvöllurVilhjálmsvöllur

Vilhjálmsvöllur á Egilsstöðum er fjölnota íþróttavöllur. Hann er byggður upp sem frjálsíþróttavöllur með sex tartan lögðum hlaupabrautum og innan brauta er knattspyrnuvöllur með grasi. Hiti er undir hlaupabrautum sem nýtist vel yfir vetrarmánuðina til skokks og heilsubótargöngu. Völlurinn heitir í höfuðið á Vilhjálmi Einarssyni þrístökkvara.

 

 

FellavöllurFellavöllur

Fellavöllur í Fellabæ er knattspyrnuvöllur, með gervigrasi, sem er Fifa keppnisvöllur í fullri stærð og uppfyllir öll skilyrði keppnisvallar að undanskildum áhorfendastúkum. Völlurinn er flóðlýstur og upphitaður og notaður til æfinga og kappleikja allt árið.

 

 

SparkvöllurSparkvellir á Fljótsdalshéraði

Á Fljótsdalshéraði eru þrír sparkvellir sem byggðir voru í samstarfi við KSÍ. Þeir standa við tvo af grunnskólum sveitarfélagsins, Egilsstaðaskóla og Brúarásskóla. Þriðji völlurinn er í Hallormsstaðaskógi við Hótel Hallormsstað.

 

 

Fosssgerði

 Aðstaða hestamanna

Í sveitarfélaginu eru tvö hesthúsasvæði. Í hesthúsabyggð við bæinn Fossgerði í Eiðaþinghá, um 5 kílómetra fyrir utan Egilsstaði, er pláss fyrir um 100 hesta í góðum hesthúsum. Þar er æfinga- og keppnisvöllur ásamt annarri nauðsynlegri aðstöðu er tengist hestamennsku.
Hestamannafélagið Freyfaxi  er með mótsvæði á Stekkhólma sem er við Iðavelli innan við Egilsstaði, á leiðinni í Hallormsstað. Þar er 1500 fermetra reiðhöll í eigu sveitarfélagsins.

 

Ekkjufellsvöllur

Golfvöllur

Á Fljótsdalshéraði er 9 holu golfvöllur rekinn af Golfklúbbi Fljótsdalshéraðs. Golfvöllurinn heitir Ekkjufellsvöllur. Hann er par 70 og státar af einni par-5 braut, sex par-4 brautum og tveimur par-3 brautum.

 

 

 

Skíðasvæðið í StafdalSkíðasvæði

Seyðisfjarðarkaupstaður og Fljótsdalshérað hafa samstarf um rekstur skíðasvæðis í Stafdal, sem liggur á milli Efri-stafs og Neðri-stafs í Fjarðarheiði. Aðeins er 10 mínútna akstur frá Seyðisfirði og 15 mínúta akstur frá Egilsstöðum að skíðasvæðinu
Á skíðasvæðinu í Stafdal eru tvær diskalyftur og skíðabrekkur við allra hæfi, jafnt fyrir lengra komna sem styttra. Barnalyfta er einnig á svæðinu. Skíðabrekkur við neðri diskalyftu er flóðlýstar. Brautir fyrir gönguskíði eru troðnar á svæðinu þegar færi gefst. Hægt er að kaupa léttar veitingar um helgar í skíðaskálanum. 

 

TjarnargarðurFrisbígolfvöllur 

Í Tjarnargarðinum í miðjum Egilsstaðabæ, er  6 körfu frisbígolfvöllur sem er öllum opinn til iðkunnar.  Við innkomuna í garðinn, við Safnahúsið, er skilti sem sýnir skipulag vallarins, m.a. lengd einstakra brauta.  hér má líka sjá uppdrátt af vellinum.

 

Skotæfingasvæði

Æfinga- og félagssvæði Skotfélags Austurlands (SKAUST) er að Þuríðarstöðum við Mjóafjarðarveg. Á svæðinu er félagshús, riffilhús og leirdúfukastarar. Hægt er að skjóta upp í 600 metra færi á riffilbrautinni. 1 trapp kastari er á staðnum og 3 auka kastarar. Hægt er að skjóta trapp og sporting á leirdúfuvellinum. Bogfimideildin er með aðstöðu í íþróttahúsinu í Fellabæ.

 

Gönguskíðabrautir

Gönguskíðahópurinn Snæhérar hafa forgöngu að því að troða gönguskíðabrautir á Fljótsdalshéraði yfir veturinn. Brautir hafa verið troðnar á þremur stöðum: á Egilsstaðatúni, í Selskógi og á Fjarðarheiði, allt eftir snjóalögum og aðstæðum.

Brautirnar eru opnar öllu gönguskíðaáhugafólki. 

Um árabil hafa Snæhérar haft þann háttinn á að þegar braut er troðin er hópnum send sms-skilaboð og þannig látið vita að hægt sé að skella sér á skíðin. Hafi einhver áhuga á að vera á sms-listanum er hægt að hafa samband við Karl Lauritzson í síma 861-1994.

Síðast uppfært 17. desember 2018