Styrkir vegna endurhæfingar

Veittir eru styrkir vegna námskostnaðar, verkfæra- og tækjakaupa vegna heimavinnu eða sjálfstæðrar starfsemi að endurhæfingu lokinni. Um ýmis verkfæri og tæki vegna náms eða í atvinnuskyni getur verið að ræða t.d. tölvukaup eða annað. Hér má nálgast  reglur  félagsþjónustunnar um styrki til náms og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks. Hér má einnig finna umsóknareyðublað.

Hér má sjá leiðbeinandi reglur velferðarráðuneytis fyrir sveitarfélög um styrki til náms og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólk, samkvæmt lögum nr. 59/1992, um málefni fatlaðs fólks, með síðari breytingum.

Síðast uppfært 07. mars 2018