Mann- og geðrækt

Ásheimar er samastaður fólks sem vill rækta sinn innri mann í góðum félagsskap.

Ásheimar eru til húsa í Miðvangi 22, Egilsstöðum (kjallari, gengið inn í húsið bakatil). Í Ásheimum er stefnt að því markmiði að vinna gegn félagslegri einangrun og skapa aðstæður fyrir fólk til að byggja sig upp andlega. Starfsemi Ásheima mótast að miklu leyti af óskum og þörfum notenda hverju sinni.
Hægt er að hafa samband í síma 4 700 795 á opnunartíma Ásheima sem er kl. 13 - 16 alla virka daga.

Facebooksíða Ásheima

Starfsmaður Ásheima er Kristín Rut Eyjólfsdóttir.

Forstöðumaður Ásheima er Anna Sigríður Karlsdóttir

Síðast uppfært 24. september 2019