Félagsþjónusta Fljótsdalshéraðs býður upp á ráðgjöf og stuðning við foreldra sem eru að hugsa um að skilja, eru í skilnaðarferli eða hafa skilið fyrir einhverju síðan og vilja bæta samvinnu sín á milli. Upplýsingabækling um verkefnið má nálgast hér.
Boðið er upp á
Verkefnið Samvinna eftir skilnað er reynsluverkefni á vegum félagsmálaráðuneytisins. Markmið verkefnisins er að innleiða og þróa nýtt vinnulag í félagsþjónustu og efla félagslega ráðgjöf með áherslu á skilnaðarmál, forsjár- og umgengnismál, barnanna vegna. Með því að veita ráðgjöf og þjónustu á fyrri stigum hjá félagsþjónustu standa vonir til þess að hægt verði að draga úr líkum á ágreiningi á milli foreldra. Á netvangi verkefnisins samvinnaeftirskilnad.is eru stafræn námskeið í þremur hlutum fyrir foreldra. Aðgangur að þeim fæst með því að hafa samband við verkefnisstjóra verkefnisins hjá Fljótsdalshéraði.
Foreldrar sem vilja þiggja stuðning og ráðgjöf varðandi skilnað og samvinnu eftir skilnað geta sett sig í samband við félagsþjónustuna, sem þjónar auk Fljótsdalshéraði, Vopnafirði, Borgarfirði eystri, Seyðisfirði, Fljótsdalshreppi og Djúpavogshreppi.
Verkefnisstjóri
Guðrún Helga Elvarsdóttir
4 700 700
gudrunhelga@egilsstadir.is
Takk fyrir!
Ábending þín er móttekin
Lyngási 12, 700 Egilsstaðir
fljotsdalsherad@fljotsdalsherad.is
kt: 481004-3220
Opnunartímar skrifstofu
8:00 - 15:45 alla virka daga
Persónuverndarfulltrúi Fljótsdalshéraðs hefur eftirlit með að farið sé að persónuverndarlögum í starfsemi sveitarfélagsins
Með íbúagátt er íbúarnir komnir í beint samband við sveitarfélagið sitt með rafrænum hætti.
Þjónustugátt fyrir kjörna fulltrúa Fljótsdalshéraðs.
Upplýsinga- og þjónustuveita ríkis og sveitarfélaga. Hér er að finna upplýsingar um opinbera þjónustu, aðgang að stórum hluta eyðublaða hins opinbera o.fl.