- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Mannlíf
Bæjarstjórn samþykkir árlega fjárhagsáætlun fyrir komandi ár og samhliða henni einnig þriggja ára áætlun sem tekur til næstu þriggja ára. Í fjárhagsáætlun koma fram áætlaðar tekjur og heimildir til útgjalda til einstakra mála og málaflokka í rekstri sveitarfélagsins. Um gerð fjárhagsáætlunar fer samkvæmt ákvæðum 63.-65. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Undirbúningur að gerð fjárhagsáætlunar næsta árs hefst að vori í fastanefndum sveitarfélagins. Í kjölfar tillagna frá nefndum samþykkir bæjarráð fjárhagsramma fyrir nefndirnar til þess að laga sig að og gera tillögur að áætlun sinna málaflokka. Að þessu ferli loknu leggur bæjarráð heildstæða fjárhagsáætlun fyrir bæjarstjórn til staðfestingar fyrir 1. nóvember. Áætlunin er tekin fyrir á tveimur fundum bæjarstjórnar, og samþykkt að lokinni síðari umræðu með þeim breytingum sem á henni kunna að hafa verið gerðar. Fjárhagsáætlun skal þannig afgreidd fyrir 15. desember.
Fjárhagsáætlun 2020 og þriggja ára áætlun 2021- 2023
Fjárhagsáætlun 2019 og þriggja ára áætlun 2020 - 2022
Fjárhagsáætlun 2018 og þriggja ára áætlun 2019 - 2021
Fjárhagsáætlun 2017 og þriggja ára áætlun 2018 - 2020
Endurskoðuð fjárhagsáætlun 2016
Fjárhagsáætlun 2016 og þriggja ára áætlun 2017 - 2019
Fjárhagsáætlun 2015 og þriggja ára áætlun 2016 - 2018
Fjárhagsáætlun 2014 og þriggja ára áætlun 2015 - 2017
Fjárhagsáætlun 2013 og þriggja ára áætlun 2014 - 2016