Náttúrumæraskrá Fljótdalshéraðs

Hér er aðgengileg á vefnum náttúrumæraskrá sem Helgi Hallgrímsson náttúrufræðingur á Egilsstöðum tók saman, fyrst 1998 í tengslum við svæðisskipulag og endurskoðaði 2007-2008 í tengslum við aðalskipulag. Í skránni eru lýsingar á um 600 stöðum og svæðum sem höfundur telur sérstaklega athyglisverð og kallar náttúrumæri (venjulega kallað náttúruminjar) og er þeim skipt í fjóra flokka eftir áætluðu verndargildi. Víða eru mærin tengd saman í stærri svæði sem kallast griðlönd.

Síðast uppfært 30. desember 2019