- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Mannlíf
Lög um málefni fatlaðs fólks með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018 er kveðið á um innleiðingu notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar (NPA).
Notendastýrð persónuleg þjónusta er byggð á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf.
Í reglum félagsþjónustu Fljótsdalshéraðs um notendastýrða persónulega aðstoð fyrir fatlað fólk er tekið mið af handbók um NPA og leiðbeinandi reglum um innleiðingu notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar. Félagsþjónustan tekur á móti umsóknum t.d. í formi bréfs.