- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Mannlíf
Brunavarnir á Austurlandi er sameiginlegt rekstrarfélag sex sveitarfélaga: Fljótsdalshéraðs, Fljótsdalshrepps, Vopnafjarðarhrepps, Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps og Seyðisfjarðar.
Yfirstjórn er skipuð einum fulltrúa frá hverju sveitarfélagi og sitja sveitar- og bæjarstjórar sem fulltrúar í stjórn.
Á Fljótsdalshéraði er slökkvistöð staðsett á Egilsstaðaflugvelli. Þar hefur slökkviliðsstjóri Brunavarna á Austurlandi aðstöðu. Á Fljótsdalshéraði eru 15 slökkviliðsmenn og eru jafnan 4 á bakvakt hverju sinni.
Hægt er að hafa samband í síma 471 2821 eða 869 4361. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið halli@brunavarnir.is
Neyðarnúmer er 112