Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs (MMF)

Sláturhús

Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs (MMF) er til húsa í Sláturhúsinu menningarsetri, Kaupvangi 7 á Egilsstöðum.

Hlutverk MMF er að standa fyrir og stuðla að eflingu lista- og menningarstarfs á Fljótsdalshéraði. Hún er ein þriggja menningarmiðstöðva á Austurlandi, samkvæmt samningi ríkisins og sveitarfélaga á Austurlandi um menningarmál og  leggur hún áherslu á sviðslistir.

Menningarmiðstöðin stendur fyrir listsýningahaldi af ýmsu tagi auk þess að aðstoða listamenn við ýmis verkefni, námskeið og fleira. Einnig býður MMF upp á gisti- og dvalaraðstöðu fyrir listamenn sem sækja um vinnuaðstöðu í Sláturhúsinu.

Allar nánari upplýsingar veitir forstöðumaður Menningarmiðstöðvarinnar í síma 897 9479 eða á netfangið mmf@egilsstadir.is

 

Síðast uppfært 03. júní 2020