Fréttir

Í samhengi við stjörnurnar

Verðlaunaverkið Í samhengi við stjörnurnar eftir Nick Payne verður sýnt í Sláturhúsinu á Egilstöðum laugardaginn 2. september, klukkan 20:30. Að auki heldur Árni Kristjánsson leikstjóri sýningarinnar opna 2 klst vinnusmiðju yfir sama dag frá 16:00 til 18:00 í Sláturhúsinu. Vinnustofan ber heitið: “Týndu hlekkirnir - einfaldar leiðir til að koma skapandi verkefnum af stað.”
Lesa

Vetraráætlun strætó tekur gildi

Vetraráætlun almenningssamgangna á Fljótsdalshéraði hefur tekið gildi. Það er eins og áður fyrirtækið Sæti ehf. sem sér um ferðirnar. Áætlunina má nálgast á heimasíðu sveitarfélagsins www.fljotsdalsherad.is og á stoppistöðvum.
Lesa

Breyting á aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs samþykkt á fundi sínum 26. júní 2017, óverulega breytingu á aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs, vegna breyttrar landnotkunar á Hleinum í landi Uppsala.
Lesa

Lífrænt heimilissorp

Eins og margir vita er allt lífrænt heimilissorp sem safnað er á Fljótsdalshéraði nú flutt til Moltu ehf. í Eyjafirði. Þar er unnin molta sem m.a. hefur staðið íbúum á Fljótsdalshéraði til boða af og til í sumar og verður í boði nú í haust. Upp á síðkastið hefur nokkuð borið á því að aðskotahlutir s.s. hnífapör og aðrir smáir málmhlutir, sem skemmt geta vélar Moltu, séu í sorpinu.
Lesa

Áhugaverð vinnustofa í Sláturhúsinu

Árni Kristjánsson leikstjóri heldur opna 2 tíma vinnusmiðju laugardaginn 2. september frá klukkan 16 til 18. Vinnustofan verður í húsakynnum Menningarmiðstöðvar Fljótdalshéraðs og ber heitið: „Týndu hlekkirnir - einfaldar leiðir til að koma skapandi verkefnum af stað.”
Lesa

Námsgögn grunnskólabarna án endurgjalds

Á fyrsta fundi bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs eftir sumarfrí, þann 16. ágúst, var samþykkt að sjá nemendum í grunnskólum fyrir nauðsynlegum námsgögnum. Ekki er ætlast til að nemendur fari heim með ritföng (blýant og strokleður) og því þurfa þeir að hafa slíkt til taks heima til heimanáms. Nemendur þurfa því aðeins að koma með skólatösku og íþrótta- og sundföt í skólann.
Lesa

Bæjarastjórn í beinni á miðvikudag

260. fundur bæjarstjórnar Fljótdalshéraðs verður haldinn í fundarsal bæjarstjórnar miðvikudaginn 16. ágúst 2017 og hefst hann kl. 17:00. Hægt er að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á netinu með því að fara inn á vefsvæði sem heitir Bæjarstjórn í beinni. Þar er einnig hægt að skoða upptökur af síðustu fundum.
Lesa

Áhrif þjóðvega í íbúðabyggð á ferðamáta nemenda í skólann

Egilsstaðaskóla barst á vordögum MS-ritgerð Ernu Báru Hreinsdóttur um ferðavenjur grunnskólabarna á landsbyggðinni. Ritgerðin var meistaraprófsverkefni við Landbúnaðarháskóla Íslands. Erna Bára rannsakaði ferðamáta grunnskólabarna í nokkrum þéttbýliskjörnum á landsbyggðinni þar sem þjóðvegur liggur um íbúðabyggð. Nemendur í Egilsstaðaskóla tók þátt í rannsókninni.
Lesa

Ormsteitið 2017 – dagskráin öll

Ormsteiti, hin árlega Héraðshátíð hefst miðvikudaginn 9. ágúst og stendur til og með sunnudagsins 13. ágúst. Það sem helst setur mark sitt á teitið að þessu sinni er að 70 ár eru nú liðin frá því Egilsstaðahreppur var stofnaður með lögum. Í tilefni þess verður boðið til grillveislu í Tjarnargarðinum seinnipart föstudagsins og í afmæliskaffi á laugardaginn. Íbúar sveitarfélagsins eru hvattir til að skreyta garða og götur en á föstudaginn fer dómnefnd á ról til að meta bestu skreytingarnar.
Lesa

Vel heppnuðu Unglingalandsmóti lokið

Eins og íbúar sveitarfélagsins hafa eflaust orðið varir við fór Unglingalandsmóti UMFÍ fram á Egilsstöðum um verslunarmannahelgina í frábæru veðri. Var mótinu slitið með pompi og prakt og glæsilegri flugeldasýningu á sunnudagskvöld. Í tilkynningu frá UMFÍ kemur fram að mótið hafi tekist vel í alla staði. Keppendur og mótsgestir voru til fyrirmyndar, frábær stemning var hjá fjölskyldum á tjaldstæðum og voru götur bæjarins skínandi hreinar alla mótshelgina
Lesa