Fréttir

Minnt á tómstundaframlagið

Hægt að sækja um tómstundaframlag ársins 2019 til 10. desember. Application deadline for contribution to children‘s leisure activities in Fljótsdalshérað is December 10th.
Lesa

Tillaga að breytingu deiliskipulags við Lagarfoss

Tillaga að breyting á deiliskipulagi vegna áforma um vindorkunýtingu við Lagarfossvirkjun og nágrenni. Deiliskipulagslýsing er sett fyrir breytingu á deiliskipulagi á iðnaðarsvæði Lagarfossvirkjunar (I3). Lýsingin er unnin í samræmi við 1.mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 6. gr. laga nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana.
Lesa

Fyrsti samráðsfundur með starfsfólki sameinaðs sveitarfélags

Undirbúningsstjórn sem vinnur að innleiðingu sameinaðs sveitarfélags leggur áherslu á að sameiningarferlið verði gagnsætt og upplýsingar aðgengilegar um verkefnin framundan. Því var haldinn fundur með starfsmönnum bæjarskrifstofu og stjórnendum þann 20. nóvember. Staða verkefnis var kynnt og innt eftir væntingum starfsmanna. Áætlað er að eiga samráð við aðra starfsmenn í upphafi nýs árs.
Lesa

Sveitarstjórnarkosningar í apríl 2020

Sveitarstjórnir Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar hafa skipað undirbúningsstjórn sem skal undirbúa stofnun nýs sveitarfélags. Íbúar sveitarfélaganna samþykktu sameiningu sveitarfélaganna með afgerandi hætti þann 26. október síðastliðinn. Áætlað er að kosið verði til nýrrar sveitarstjórnar eftir páska og að nýtt sveitarfélag taki til starfa í lok apríl eða byrjun maí. Fram að þeim tíma starfa sveitarfélögin fjögur eins og verið hefur.
Lesa

Dagskrá bæjarstjórnarfundar 20. nóvember

304. fundur bæjarstjórnar Fljótdalshéraðs verður haldinn í fundarsal bæjarstjórnar miðvikudaginn 20. nóvember 2019 og hefst hann klukkan 17:00. Hægt er að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á netinu með því að fara inn á vefsvæði sem heitir Bæjarstjórn í beinni. Þar er einnig hægt að skoða upptökur af síðustu fundum.
Lesa

Fljótsdalshérað auglýsir styrki til menningarstarfs á árinu 2020

Atvinnu- og menningarnefnd Fljótsdalshéraðs auglýsir til umsóknar styrki til menningarstarfs með umsóknarfresti til og með 16. desember 2019.
Lesa

Líða fer að jólum í Safnahúsinu

Þegar aðventan gengur í garð er Safnahúsið klætt í jólabúninginn og starfsfólkið byrjar að telja niður til jóla. Fimmtudaginn 5. desember bjóða Minjasafnið og Bókasafnið til notalegrar fjölskyldusamveru frá 16:00-18:00.
Lesa

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028, Efri Jökuldalur

Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs samþykkti á fundi sínum þann 18. september sl., að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 vegna áforma um uppbyggingu ferðaþjónustu að Grund í Jökuldal, sbr. 30. og 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Lesa

Almennur borgarafundur um fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs

Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs boðar til almenns borgarafundar fimmtudaginn 14. nóvember um fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs árið 2020, ásamt þriggja ára áætlun áranna 2021 – 2023.
Lesa

Bókun varðandi sjúkraflug

Á fundi bæjarráðs Fljótsdalshéraðs 4. nóvember fór Björn Ingimarsson bæjarstjóri yfir fyrri umfjöllun og umræður varðandi sjúkraflug á Austurlandi. Fram kom hjá honum að einungis ein sjúkraflugvél er starfrækt á landinu, sem gerð er út frá Akureyri. Í ljósi þess er augljóst að upp getur komið mjög alvarleg staða, ef útköll koma á sama tíma á mismunandi landsvæðum.
Lesa