Fréttir

Bæjarstjórnarfundur á miðvikudag

254. fundur bæjarstjórnar Fljótdalshéraðs verður haldinn í fundarsal bæjarstjórnar miðvikudaginn 5. apríl 2017 og hefst hann klukkan 17:00. Hægt er að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á netinu með því að fara inn á vefsvæði sem heitir Bæjarstjórn í beinni. Þar er einnig hægt að skoða upptökur af síðustu fundum.
Lesa

KrakkaRÚV frá Egilsstöðum

Í byrjun marsmánaðar var námskeið á vegum Okkar eigin og KrakkaRÚV í upptöku- og útvarpsþáttagerð í Sláturhúsinu, menningarsetri á Egilsstöðum. Námskeiðið var haldið í samstarfi við Sláturhúsið en því stjórnaði Sigyn Blöndal og efnið sem varð til á námskeiðinu verður notað til flutnings í Útvarps stundinni okkar á Rás 1.
Lesa

Íbúum Fljótsdalshéraðs fjölgar

Íbúum Fljótsdalshéraðs fjölgaði um 50 milli áranna 2016 og 2017, eða um 1.45% og voru alls 3.493 1. janúar 2017. Í þéttbýlinu á Egilsstöðum og Fellabæ voru íbúarnir 2.797 1. janúar.
Lesa

Austurlandið þitt – endurskoðun sóknaráætlunar

Framundan er árleg vinna við endurskoðun sóknaráætlunar Austurlands og að venju eru allir íbúar hvattir til að taka þátt í þessu mikilvæga verkefni. Haldnir verða þrír fundir sem hverfast um meginkafla sóknaráætlunar.
Lesa

Tónlistarskólinn á Egilsstöðum með tvö atriði á Nótunni í Hörpu

Svæðistónleikar Nótunnar, uppskeruhátíðar tónlistarskólanna, voru haldnir í Egilsstaðakirkju um síðustu helgi. Tvennir tónleikar fóru fram og voru atriði í grunnnámsflokki á þeim fyrri, en atriði í miðnáms- framhaldsnáms- og opnum flokki á þeim síðari. Sjö atriði hlutu þátttökurétt á Nótunni sem haldinn verður í Hörpu þann 2.apríl, þar af tvö frá Tónlistarskólanum á Egilsstöðum.
Lesa

Kynning á frummatsskýrslu um Kröflulínu

Frummatsskýrsla um Kröflulínu 3 verður kynnt á Hótel Héraði þriðjudaginn 28.mars frá klukkan 18 til 21.
Lesa

Hattarmenn í fjáröflun

Næstu daga ganga leikmenn beggja meistaraflokka Hattar í hús og selja sjúkrapúða.
Lesa

Áfangastaðinn Austurland tekur flugið

Stórum áfanga verður náð í verkefninu um Áfangastaðinn Austurland miðvikudaginn 22. mars þegar ný heimasíða www.austurland.is opnar með viðhöfn á Egilsstaðaflugvelli sem hefst klukkan 14:30. Allir eru velkomnir á þessa dagskrá.
Lesa

Ronja í uppfærslu LME í Sláturhúsinu

Leikfélag Menntaskólans á Egilsstöðum frumsýnir leikritið Ronja Ræningjadóttir, sem byggt er á sögu Astrid Lindgren, föstudaginn 17. mars klukkan 20:00 í Sláturhúsinu menningarsetri á Egilsstöðum. Leikstjóri sýningarinnar er Íris Lind Sævarsdóttir.
Lesa

Ársreikningur Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2016

Ársreikningur Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2016 var lagður fram í bæjarráði Fljótsdalshéraðs þann 15. mars 2017 og samþykktur og áritaður af bæjarráði og bæjarstjóra og vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn þann sama dag.
Lesa