Fréttir

Söguganga um Egilsstaðabæ

Vel tókst til þegar gengið var í Taglarétt síðasta miðvikudag, 6. september, en gangan sú var hluti af Lýðheilsugöngum Ferðafélags Íslands í september. Á morgun, miðvikudaginn 13. september, verður önnur gangan af fjórum, en þá verður farið í sögugöngum um Egilsstaðabæl.
Lesa

Umgengni í þéttbýlinu

Nokkuð hefur borið á því undanfarið að óbyggðar lóðir, opin svæði og almenn bifreiðastæði séu notuð sem geymslusvæði m.a. fyrir númerslausa bíla. Þeir íbúar sem hafa komið eigum sínum fyrir utan sinna lóða eru hvattir til að fjarlægja þær sem fyrst,
Lesa

Fyrirkomulag á viðtalstímum bæjarfulltrúa Fljótsdalshéraðs næsta vetur

Í bæjarráði hefur verið fjallað um aðgengi íbúa sveitarfélagsins að kjörnum fulltrúum. Ákveðið var að breyta fyrirkomulagi á auglýstum viðtalstímum næsta vetur frá því sem verið hefur og samþykkti bæjarstjórn eftirfarandi hugmyndir þar um nýlega. Einhverjar útfærslubreytingar kunna þó að verða gerðar, gerist þess þörf.
Lesa

Nýir deildarstjórar teknir til starfa

Tveir deildarstjórar hófu nýlega störf hjá Fljótsdalshéraði. Það eru Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson skipulags- og byggingarfulltrúi og Júlía Sæmundsdóttir félagsmálastjóri.
Lesa

Fyrsta lýðheilsugangan sló í gegn

Fjölmennt var í fjölskyldugöngu í gær, miðvikudaginn 6. september, sem gengin var á vegum Ferðafélags Fljótsdalshéraðs. Var gengið í Taglarétt og mættu í kringum 30 manns í gönguna, sem hlýtur að vera heimsmet miðað við höfðatölu.
Lesa

Uppfærsla á tölvukerfi takamarkar upplýsingagjöf

Uppfærsla á tölvukerfi hjá bæjaskrifstofum Fljótsdalshéraðs veldur því m.a. að fjármálasviðið getur veitt takmarkaðar upplýsingar til íbúa út þessa viku.
Lesa

Plastlaus september

Plastlaus september er átak sem hófst 1. september síðastliðinn og miðar að því að vekja landsmenn til umhugsunar um plastnotkun, þann plastúrgang sem fellur til á heimilum og vinnustöðum og þá ofgnótt plasts sem er í umhverfinu.
Lesa

Lýðheilsugöngur Ferðafélags Íslands í september

Ferðafélag Íslands stendur fyrir lýðheilsugöngum í september, í samstarfi við sveitarfélög og ferðafélög um land allt. Eru göngurnar liður í afmælisdagskrá FÍ, sem fagnar 90 ára afmæli á árinu. Á Fljótsdalshéraði er það Ferðafélag Fljótsdalshéraðs sem skipuleggur göngurnar.
Lesa

Bæjarráð ályktar vegna málefna sauðfjárbænda

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs skorar á ríkisstjórn Íslands að bregðast þegar við bráðavanda sem upp er kominn í sauðfjárrækt. Miðað við núverandi stöðu er mikil hætta á alvarlegri byggðaröskun sem kæmi þungt niður á samfélögum til sveita og þeim sveitarfélögum sem byggja að miklu leyti á landbúnaði.
Lesa

Dagskrá bæjarstjórnar á miðvikudag

261. fundur bæjarstjórnar Fljótdalshéraðs verður haldinn í fundarsal bæjarstjórnar miðvikudaginn 6. september 2017 og hefst hann klukkan 17:00. Hægt er að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á netinu með því að fara inn á vefsvæði sem heitir Bæjarstjórn í beinni. Þar er einnig hægt að skoða upptökur af síðustu fundum.
Lesa