Fréttir

Skógrækt á Davíðsstöðum ekki matsskyld

Á fundi bæjarráðs nr. 390 þann 26. júní 2017 var tekin sú ákvörðun að hefðbundin nytjaskógrækt, 50 ha í landi Davíðsstaða skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum
Lesa

Tillaga að breyttu aðalskipulagi

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkti á fundi sínum þann 22.06.2017 að kynna verkefnislýsingu að breytingu á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraði 2008-2028 vegna breyttra áforma um landnotkun í landi Davíðsstaða.
Lesa

Framkvæmdirnar við Tjarnarbraut

Nú fer að sjá fyrir endann á framkvæmdum við Tjarnarbraut. Búið er að skipta út efsta jarðvegslaginu og jafna og verið er að hefla götuna og undirbúa fyrir malbikunarframkvæmdir sem eru fyrirhugaðar á þriðjudag/miðvikudag.
Lesa

Velheppnað sumarnámskeið að baki

Sumarnámskeið fyrir hressa krakka var haldið dagana 6-24. júní á vegum félagsmiðstöðvarinnar Nýungar. Námskeiðið gekk ljómandi vel, þrátt fyrir að veðurguðirnir hefðu mátt verið hópnum örlítið hliðhollari. Yfir þrjátíu krakkar tóku þátt í þessu námskeiðinu.
Lesa

13 ljóð á vegg

Eins og undanfarin ár skarta nokkrir gluggar og veggir á fjölförnum stöðum á Egilsstöðum og í Fellabæ ljóðum og kvæðum heimafólks. Þetta er í sjötta sinn sem þetta er gert undir formerkjunum Ljóð á vegg. Í ár er 70 ára kaupstaðarafmælis Egilsstaða minnst og því ákvað stjórn verkefnisins Ljóð á vegg að velja ljóð og kvæði eftir fólk sem á eða hefur búið á Héraði. Á bæklingi sem gefinn var út í tilefni verkefnisins má sjá hvar ljóðin eru á veggjum eða í gluggum.
Lesa

Hreinn sæmdur heiðurskrossi Frjálsíþróttasambands Íslands

Á miðvikudaginn, þann 21. júní 2017, var opnuð í Íþróttamiðstöðinni á Egilsstöðum sýningin Strandamaðurinn sterki, um afreksmanninn og kúluvarparann Hrein Halldórsson. Við það tilefni var Hreinn sæmdur heiðurskrossi Frjálsíþróttasambands Íslands, en aðeins fimm einstaklingar fá að bera þá orðu á hverjum tíma.
Lesa

Íbúum Fljótsdalshéraðs fjölgar

Um síðustu mánaðamót fór íbúafjöldi Fljótsdalshéraðs yfir 3.500. En það gerðist síðast á tímabilinu 2006 og 2009 þegar mikill fjöldi starfsmanna var búsettur í nokkrum sveitarfélögum á Austurlandi vegna uppbyggingar álvers á Reyðarfirði og Kárahnjúkavirkjunar í Fljótsdal.
Lesa

Leitað að gögnum um fyrstu ár byggðar í Egilsstaðakauptúni

Fljótsdalshérað vinnur nú að gerð húsaskrár yfir elstu byggingar í sveitarfélaginu og snýr fyrsti áfangi verkefnisins að skráningu elstu húsa í Egilsstaðabæ.
Lesa

Samið um uppbyggingu íþróttamiðstöðvarinnar

Samningur á milli Fljótsdalshéraðs og Íþróttafélagsins Hattar um uppbyggingu Íþróttamiðstöðvarinnar á Egilsstöðum var undirritaður 17. júní í Tjarnargarðinum á Egilsstöðum. Á sama stað fóru fram hátíðarhöld vegna Þjóðhátíðardagsins og strax að undirritun lokinni var boðið upp á fimleikasýningu fimleikadeildar Hattar.
Lesa

Dagskrá síðasta bæjarstjórnarfundar fyrir sumarfrí

259. fundur bæjarstjórnar Fljótdalshéraðs verður haldinn í fundarsal bæjarstjórnar miðvikudaginn 21. júní 2017 og hefst hann kl. 17:00. Hægt er að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á netinu með því að fara inn á vefsvæði sem heitir Bæjarstjórn í beinni. Þar er einnig hægt að skoða upptökur af síðustu fundum.
Lesa