Fréttir

Kynningarfundur um starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Nýungar

Stuttur kynningarfundur um starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Nýungar verður haldinn annað kvöld, þriðjudaginn 20. september. Fundurinn er fyrir foreldra barna á unglingastigi í grunnskólum á Fljótsdalshéraði.
Lesa

Bæjarstjórnarfundur á þriðjudag

243. fundur bæjarstjórnar Fljótdalshéraðs verður haldinn í fundarsal bæjarstjórnar, þriðjudaginn 20. september 2016 og hefst hann klukkan 17:00. Hægt er að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á netinu með því að fara inn á vefsvæði sem heitir Bæjarstjórn í beinni. Þar er einnig hægt að skoða upptökur af síðustu fundum.
Lesa

Ungbarnaleikhús í Sláturhúsinu á laugardag

Finnskt ungbarnaleikhús heimsækir Sláturhúsið á laugardag með sýningu sem var frumsýnd í Edinborgarhúsinu á Ísafirði 2014. Sýningin sem nefnist "Ég hlusta á vindinn" er finnsk/íslensk sýning sérsniðinn að ungbörnum.
Lesa

Fræðslufundur um fíkniefnaneyslu

Fíkniefnafræðsla, með áherslu á notkun og áhrif fíkniefna á andlega og líkamlega heilsu ungs fólks, verður haldinn í Menntaskólanum á Egilsstöðum á laugardag. Fræðslan er sérstaklega ætluð foreldrum/forráðamönnum, starfsfólki stofnanna og þjálfurum barna og ungmenna.
Lesa

Deep Brown Sea í Sláturhúsinu

Um þessar mundir dvelur Billie Hanne dansari og danshöfundur í Kaffistofunni, listamannaíbúð Sláturhússins. Billie kemur frá Belgíu og starfar sem danslistamaður og kennir um allan heim. Hún segist hafa komið til Íslands í leit að innblæstri og frið til að vinna að list sinni. Billie sækir sérstaklega að vinna með óhefðbundin rými og er því einkar hrifinn af Sláturhúsinu.
Lesa

Fljótsdalshérað-Fjarðabyggð í fyrsta Útsvari vetrarins

Útsvar vetrarins á RÚV hefst föstudaginn 9. september með látum því Fljótsdalshérað mætir Fjarðabyggð. Útsendingin hefst klukkan 20.
Lesa

Reykjavíkurflugvöllur - framtíðarstaðsetning

Á fundi bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs þann 7. september var eftirfarandi bókun gerð og samþykkt samhljóða.
Lesa

Heitavatnslaust sunnudaginn 11. september

Vegna tengingar á nýrri stofnlögn Hitaveitu Egilsstaða og Fella verður heitavatnslaust á ÖLLU veitusvæði hitaveitunnar sunnudaginn 11. september frá klukkan 10:00 og fram eftir degi. Einnig er bent á að sundlauginn verður lokuð frá klukkan 10 vegna framkvæmdanna.
Lesa

Bókasafnsdagurinn 8. september

Bókasafnsdagurinn er haldinn hátíðlegur fimmtudaginn 8.september. Við á Bókasafni Héraðsbúa ætlum að nota tækifærið þann dag og afhenda 12 viðurkenningar til krakka sem tóku þátt í Sumarlestrinum á safninu.
Lesa

Námskeið í samtímadansi í Vegahúsinu

Haldið verður námskeið í samtímadansi fimmtudaginn 8. september frá 16:00 til 18:00 í Sláturhúsinu. Námskeiðið er á vegum Vegahússins í samstarfi við Menningamiðstöð Fljótsdalshéraðs. Það er ætlað áhugasömum ungmennum á aldrinum 13-25 ára og er ókeypis.
Lesa