Kynningarfundur um starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Nýungar

Félagsmiðstöðin Nýung
Félagsmiðstöðin Nýung

Stuttur kynningarfundur um starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Nýungar verður haldinn annað kvöld, þriðjudaginn 20. september. Fundurinn er fyrir foreldra barna á unglingastigi í grunnskólum á Fljótsdalshéraði.

Farið verður yfir starfsemina í félagsmiðstöðinni og helstu áherslur í starfinu í vetur.

Fundurinn verður haldinn í fyrirlestrarsal Egilsstaðaskóla og hefst klukkan 19:30.