Fljótsdalshérað-Fjarðabyggð í fyrsta Útsvari vetrarins

Sigurvegarar Útsvars í vor. Mynd af vef RÚV
Sigurvegarar Útsvars í vor. Mynd af vef RÚV

Útsvar vetrarins á RÚV hefst föstudaginn 9. september með látum því Fljótsdalshérað mætir Fjarðabyggð. 

Keppendur Fljótsdalshéraðs í vetur eru þrautreyndir, þau Björg Björnsdóttir, Hrólfur Eyjólfsson og Stefán Bogi Sveinsson en hann kemur í stað Þorsteins Bergssonar.

Viðbót:

En úrslitin urðu þannig að Fjarðabyggð sigraði með 85 stigum gegn 54. Og við óskum Davíð Þór, Hákoni og Heiðu Dögg til hamingju og góðs gengis áfram.