Fréttir

Samið við Austurbrú um innviðagreiningu

Fljótsdalshérað og Hitaveita Egilsstaða og Fella hafa samið við Austurbrú um að Austurbrú taki að sér gerð innviðagreiningar fyrir Fljótsdalshérað.
Lesa

Framkvæmdir við Tjarnarbraut

Undanfarnar vikur og mánuði hafa staðið yfir framkvæmdir við Tjarnarbrautina á vegum Hitaveitunnar og Fljótsdalshéraðs. Framkvæmdirnar standa nú sem hæst þar sem til stendur að skipta út efsta jarðvegslaginu í Tjarnarbrautinni.
Lesa

Rafhleðslustöð fyrir bíla sett upp á Egilsstöðum

Ný rafhleðslustöð var sett upp við íþróttamiðstöðina á Egilsstöðum þann 16. maí. Hleðslustöðin sem um ræðir er gjöf Orkusölunnar til Fljótsdalshéraðs og er ætluð til hleðslu á rafmagnsfarartækjum.
Lesa

Hreyfivika UMFÍ á Fljótsdalshéraði

Nú styttist óðum í Hreyfiviku UMFÍ, Move Week, en hún verður haldin um allt land dagana 29. maí – 4. júní 2017. Á Fljótsdalshéraði tökum við að sjálfsögðu þátt eins og síðustu ár.
Lesa

Umhverfi og umhirða í sveitarfélaginu

Lagt var fram í bæjarráði Fljótsdalshéraðs 15. maí bréf frá kvenfélaginu Bláklukkum dagsett 4. maí 2017, þar sem sveitarfélagið og íbúar þess eru hvattir til átaks í að fegra og bæta umhverfið. Bent er á að í sumar er 70 ára afmæli þéttbýlisins á Egilsstöðum og íbúar, fyrirtæki og sveitarfélagið því hvött til að leggja sérstaka áherslu á góða umgengni og fegrun umhverfisins.
Lesa

Málþing um heilabilun í Hlymsdölum

Málþing um stefnu og framtíðarsýn varðandi heilabilun og þróun náms í heilabilunarráðgjöf verður haldin í Hlymsdölum á Egilsstöðum föstudainn 19. maí frá klukkan 13 til 17.
Lesa

Ráðið í starf félagsmálastjóra hjá Fljótsdalshéraði

Úrvinnslu umsókna í ofangreint starf er lokið og hefur verið ákveðið að ráða Júlíu Sæmundsdóttur í starfið.
Lesa

Vorhreingerning hjá Íþróttamiðstöðinni

Vorhreingerningin í Íþróttamiðstöðinni verður 17. til 19. maí. Opnað aftur tandurhreint og fínt með ýmsum nýungum laugardaginn 20. maí klukkan 10.
Lesa

Dagskrá bæjarstjórnarfundar á miðvikudag

257. fundur bæjarstjórnar Fljótdalshéraðs verður haldinn í fundarsal bæjarstjórnar miðvikudaginn 17. maí 2017 og hefst hann klukkan 17:00. Hægt er að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á netinu með því að fara inn á vefsvæði sem heitir Bæjarstjórn í beinni. Þar er einnig hægt að skoða upptökur af síðustu fundum.
Lesa

Sex sóttu um skipulags- og byggingafulltrúa

Um starf skipulags- og byggingafulltrúa Fljótsdalshéraðs, sem nýverið var auglýst laust til umsóknar, hafa borist umsóknir frá 6 einstaklingum. Ráðningarstofa Capacent annast yfirferð og úrvinnslu umsókna.
Lesa