Fréttir

Bæjarstjórn í beinni

250. fundur bæjarstjórnar Fljótdalshéraðs verður haldinn í fundarsal bæjarstjórnar, miðvikudaginn 1. febrúar 2017 og hefst hann klukkan 17:00. Hægt er að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á netinu með því að fara inn á vefsvæði sem heitir Bæjarstjórn í beinni. Þar er einnig hægt að skoða upptökur af síðustu fundum.
Lesa

Tónlist eftir Charles Ross á Myrkum músíkdögum

Nútímasveitin Stelkur flytur tónlist eftir Charles Ross í Hörpu, Reykjavík, laugardaginn 28. janúar kl. 20. Á tónleikunum verða frumflutt verk eftir Charles Ross þar sem málverk listamannsins Stefáns frá Möðrudal, Stórval, verða túlkuð með tónum.
Lesa

Lífshlaupið 2017

Lífshlaupið – landskeppni í hreyfingu, verður ræst í tíunda sinn miðvikudaginn 1. febrúar næstkomandi. Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Markmið þess er að hvetja landsmenn til þess að stunda hreyfingu hvort sem er í frítíma, vinnu, skóla eða sem ferðamáta.
Lesa

Bylgja ráðin verkefnisstjóri

Bylgja Borgþórsdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri íþrótta-, tómstunda- og forvarnamála hjá Fljótsdalshéraði. Bylgja hefur starfað sem kennari við Egilsstaðaskóla undanfarin misseri. Alls sóttur 7 um starf verkefnastjóra.
Lesa

Jón Arngrímsson fékk Þorrann í ár

Jón Arngrímsson hlaut Þorrann í ár fyrir ómetanlegt framlag til tónlistarlífs á Héraði.
Lesa

Óskir íslenskra barna í Sláturhúsinu

Ljósmyndasýningin Óskir íslenskra barna verður opnuð í Sláturhúsinu laugardaginn 28. janúar klukkan 16. Sýningin er gjöf ljósmyndarans Ástu Kristjánsdóttur og Barnaheilla – Save the Children á Íslandi í tilefni af 25 ára afmæli samtakanna og barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Lesa

Minningar um torfhús - sýning í Safnahúsinu Egilsstöðum

Sett hefur verið upp í Safnahúsinu á Egilsstöðum sýning franska fornleifafræðingsins Söndru Coullenot á 25 ljósmyndum sem hún hefur tekið vítt og breitt um Ísland af gömlum byggingum
Lesa

52 erindi lögð fram á bæjarstjórnarbekk Barrans

Á bæjarstjórnarbekkinn, sem boðið var upp á á Jólamarkaði Barra laugardaginn 17. desember sl., mættu 30 viðmælendur með 52 erindi. Þar af voru 6 erindi sem send verða á forstöðumann Vegagerðarinnar á Austurlandi.
Lesa

Skrifað undir saminga um ylströndina við Urriðavatn

Fyrirhugað er að ylströndin við Urriðavatn með tilheyrandi mannvirkjum verði að veruleika og tekin í notkun vorið 2019. Eigendur Bláa lónsins og Jarðbaðanna í Mývatnssveit taka þátt í verkefninu ásamt heimamönnum og voru samningar undirritaðir í dag á hráslagalegum janúardegi.
Lesa

Íþróttamiðstöð lokar vegna þorrablóts

Starfsemi íþróttamiðstöðvar raskast frá 18. janúar vegna þorrablóts Egilsstaða. Lokað verður þann 20. janúar.
Lesa