52 erindi lögð fram á bæjarstjórnarbekk Barrans

Frá bæjarstjórnarbekknum á Barranum í desember 2016.
Frá bæjarstjórnarbekknum á Barranum í desember 2016.

Á bæjarstjórnarbekkinn, sem boðið var upp á á Jólamarkaði Barra laugardaginn 17. desember sl., mættu 30 viðmælendur með 52 erindi. Þar af voru 6 erindi sem send verða á forstöðumann Vegagerðarinnar á Austurlandi.

Hér er að finna þau erindi er bárust Umhverfis- og framkvæmdarnefnd og svör við þeim. Svörum annarra fagnefnda verður komið á framfæri síðar, eða þegar að þau hafa hlotið afgreiðslu.