Fréttir

Menningarhús: Samningur undirritaður

Ný burst rís við Safnahúsið á Egilsstöðum á næstu árum samkvæmt samningi sem undirritaður var við hátíðlega athöfn í Safnahúsinu í gær. Þá verður aðstaðan í Sláturhúsinu einnig bætt.
Lesa

Frá yfirkjörstjórn Fljótsdalshéraðs

Auglýsing frá yfirkjörstjórn Fljótsdalshéraðs um kosningar til sveitarstjórnar þann 26. maí 2018. Kjörstaður við sveitarstjórnarkosningarnar þann 26. maí nk. verður að venju í Menntaskólanum á Egilsstöðum. Kjörfundur hefst klukkan 09:00 og honum lýkur klukkan 22.00.
Lesa

Myndband - Sameiginlegur framboðsfundur allra framboða á Fljótsdalshéraði

Mánudagskvöldið 21. maí kl. 20:00 var haldinn sameiginlegur framboðsfundur allra framboða vegna sveitarstjórnarkosninga á Fljótsdalshéraði. Fundurinn var haldinn í grunnskólanum á Egilsstöðum og var hann vel sóttur. Hægt er að horfa á upptökur frá fundinum í fréttinni.
Lesa

Menningarhús: Undirritun vegna stofnframlags

Þriðjudaginn 22. maí verður undirritað samkomulag milli mennta- og menningarmálaráðuneytis og Fljótsdalshéraðs um stofnframlag til byggingar menningarhúss á Egilsstöðum. Athöfnin fer fram við Safnahúsið á Egilsstöðum klukkan 17:15.
Lesa

Ókeypis frisbígolfnámskeið fyrir alla fjölskylduna

Helgina 19.-20. maí býður Ungmennafélagið Þristur Héraðsbúa, nærsveitunga og alla áhugasama velkomna á frisbígolfnámskeið í Tjarnargarðinum á Egilsstöðum. Á námskeiðunum verða kennd undirstöðuatriði, og öll helstu trixin, í frisbígolfi.
Lesa

Kröflulína III breytt lega.

Kröflulína 3 er fyrirhuguð frá tengivirki við Kröfluvirkjun í Skútustaðahreppi að tengivirki við Fljótsdalsstöð í Fljótsdalshreppi. Í gildandi Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 er gert ráð fyrir línunni og að hún liggi meðfram Kröflulínu 2, sem þegar er risin. Línuleiðin liggur frá vestari staðarmörkum sveitarfélagsins í Jökulsá á Fjöllum við Núpaskot að staðarmörkum Fljótsdalshrepps á Klausturselsheiði. Landsnet lagði í júlí 2017 fram umhverfisskýrslu í samræmi við lög um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000. Þar kemur fram að sá kostur sem Landsnet telur nú heppilegastan, víkur frá línuleiðinni í aðalskipulaginu á 10 km kafla innan Fljótsdalshéraðs.
Lesa

Fögnum fjölbreytileikanum

Mánudaginn 21. maí , á annan í hvítasunnu, verður Fjölmenningarhátíð haldin í Sláturhúsinu menningarsetri á Egilsstöðum. Dagskrá hátíðarinnar er fjölbreytt - í boði verða vinnustofur, tónlist, alþjóðlegar kvikmyndir, stuttir fyrirlestrar, leikir og matur.
Lesa

Glímt við heimsmet í handstöðu

Í tilefni þess að Fimleikasamband Íslands er 50 ára ætlar fimleikadeild Hattar að taka þátt í því að setja heimsmet í handstöðu. Viðburðurinn fer m.a. fram í Laugardalshöllinni en einnig á Vilhjálmsvelli fimmtudaginn 17. maí.
Lesa

Framboðsfundur vegna sveitarstjórnarkosninga 2018

Boðað er til sameiginlegs framboðsfundar allra framboða á Fljótsdalshéraði vegna sveitarstjórnarkosninga sem fram fara 26. maí næstkomandi. Framboðsfundurinn verður haldinn í Egilsstaðaskóla mánudaginn 21. maí klukkan 20:00.
Lesa

Sumarfjör 2018 / Summer activities for children 2018

Nú þegar sumarið nálgast óðfluga er ekki úr vegi að benda á allt það frábæra tómstundastarf sem fer fram á Fljótsdalshéraði. Upplýsingar um tómstundastarf og ýmis konar námskeið sem haldin verða í sumar fyrir börn og ungmenni eru nú aðgengilegar á heimasíðu sveitarfélagsins en í ár ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi.
Lesa