Frá yfirkjörstjórn Fljótsdalshéraðs

Kjörstaður verður að venju í Menntaskólanum á Egilsstöðum
Kjörstaður verður að venju í Menntaskólanum á Egilsstöðum

Auglýsing frá yfirkjörstjórn Fljótsdalshéraðs um kosningar til sveitarstjórnar þann 26. maí 2018.

Kjörstaður við sveitarstjórnarkosningarnar þann 26. maí nk. verður að venju í Menntaskólanum á Egilsstöðum. Kjörfundur hefst klukkan 09:00 og honum lýkur klukkan 22.00.

Kjördeildir verða tvær. Í kjördeild nr. 1 verða íbúar á Egilsstöðum sem búa við götur, hverra nöfn byrja á bókstafnum A til og með bókstafnum R. Í kjördeild 2 verða íbúar á Egilsstöðum sem búa við götur hverra nöfn byrja á bókstafnum S - Þ og íbúar í Fellabæ, Eiðum og Hallormsstað og í dreifbýli á Fljótsdalshéraði.

Á kjördag, meðan atkvæðagreiðsla stendur yfir, mun yfirkjörstjórn hafa aðsetur sitt á kjörstað í Menntaskólanum á Egilsstöðum.

Sími yfirkjörstjórnar á kjördag er 669-7982, póstfang: kjorstjorn@me.is

Talning atkvæða fer fram í Menntaskólanum á Egilsstöðum og hefst að kjörfundi loknum.

Yfirkjörstjórn Fljótsdalshéraðs 22. maí 2018.

Bjarni G Björgvinsson
Þórunn Hálfdanardóttir
Ólöf Ólafsdóttir