Fréttir

Samningur endurnýjaður við Þjónustusamfélagið

Björn Ingimarsson bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs og Ívar Ingimarsson formaður Þjónustusamfélagsins á Héraði undirrituðu nýjan samstarfssamning milli sveitarfélagsins og Þjónustusamfélagsins, um áframhaldandi samstarf vegna markaðsmála, þann 15. janúar sl.
Lesa

Fræðsla um rafrettur

Í næstu viku kemur Björg Eyþórsdóttir, hjúkrunarfræðingur og MA nemi við Háskólann á Akureyri, og fræðir unglinga á Fljótsdalshéraði um rafrettur, skaðsemi þeirra og áhættu sem fylgir notkun þeirra. Að auki verður fræðsla fyrir foreldra, forráðamenn og aðra áhugasama í Egilsstaðaskóla að kvöldi 24. janúar.
Lesa

SKÍS gefur 6 og 7 ára börnum kort á skíðasvæðið

Í ár, líkt og í fyrra, gefur Skíðafélagið í Stafdal öllum 6 og 7 ára börnum á Fljótsdalshéraði og Seyðisfirði kort á skíðasvæðið í Stafdal. Kortin eru merkt með nafni hvers barns. Þau gilda frá áramótum og þar til svæðið lokar í vor.
Lesa

Dagskrá bæjarstjórnarfundar á miðvikudag

267. fundur bæjarstjórnar Fljótdalshéraðs verður haldinn í fundarsal bæjarstjórnar, miðvikudaginn 17. janúar og hefst hann klukkan 17:00. Hægt er að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á netinu með því að fara inn á vefsvæði sem heitir Bæjarstjórn í beinni.
Lesa

Jólatrjáasöfnun á Fljótsdalshéraði

Jólatré íbúa á Egilsstöðum og í Fellabæ verða fjarlægð þann 15. janúar nk. að því tilskyldu að þau séu vel sýnileg og við lóðamörk. Íbúar geta einnig losað sig við jólatré á gámavellinum í Tjarnarási.
Lesa

Fjölskylduslökun á sunnudögum

Á sunnudögum í janúar og febrúar verður boðið upp á fjölskylduslökun í Sláturhúsinu. Verður þessi samvera með jógaívafi og miðar að því að auka tengsl, ná slökun og efla samveru foreldra/forráðafólks og barna.
Lesa

Helga Jóna Svansdóttir íþróttamaður ársins hjá Hetti

Þrettándagleði Fljótsdalshéraðs og Hattar fór fram með hefðbundnu sniði þann 6. janúar með kyndlagöngu og brennu í Lómatjarnargarði. Áætlað er að um 400 manns hafi komið saman. Íþróttamaður ársins hjá Hetti var valin í 30. sinn og starfsmerki Hattar voru veitt.
Lesa

Fjölmenning í Sláturhúsinu

Á Fljótsdalshéraði búa nú Héraðsbúar af margvíslegum uppruna og frá fjölda þjóðlanda og ætla má að auk þess mannauðs sem með þessum íbúum fæst felist þar einnig mikill menningarauður. Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs vill gjarnan stofna til verkefna og viðburða þar sem gengið verður í þennan menningarsjóð og leitar nú eftir hugmyndum að verkefnum.
Lesa

Þrettándagleði í Tjarnargarðinum

Þrettándagleði Hattar og Fljótsdalshéraðs verður haldin í Tjarnargarðinum á Egilsstöðum laugardaginn 6. janúar. Þar verður íþróttafólki Hattar ársins 2017 veittar viðurkenningar auk þess sem starfsmerki Hattar verða afhent, lúðrasveitin leikur nokkur lög og að lokum sér Björgunarsveitin á Héraði um flugeldasýningu.
Lesa

Útivistarnámskeið fyrir börn og unglinga

Ungmennafélagið Þristur heldur 10 vikna útivistarnámskeið fyrir börn og unglinga frá 5 til 15 ára. Námskeiðin hefjast 15. janúar, en námskeiðunum verður skipt í þrjá aldursflokka. Markmið námskeiðsins er að kynna börn og unglinga fyrir þeim mörgu og skemmtilegu möguleikum sem felast í útivist og töfrum náttúrunnar
Lesa