Fjölmenning í Sláturhúsinu

Á Fljótsdalshéraði búa nú Héraðsbúar af margvíslegum uppruna og frá fjölda þjóðlanda og ætla má að auk þess mannauðs sem með þessum íbúum fæst felist þar einnig mikill menningarauður.

Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs vill gjarnan stofna til verkefna og viðburða þar sem gengið verður í þennan menningarsjóð og koma á menningarmóti innfæddra og aðfluttra Héraðsbúa.

MMF leita nú eftir hugmyndum að verkefnum og óskar eftir ábendingum um einstaklinga af öllum þjóðernum sem mögulegt væri að leita til eftir samvinnu.

Vinsamlega hafið samband í mmf@egilsstadir eða í síma 8979479