25.04.2007
kl. 09:52
Fréttir
Hafinn er undirbúningur að byggingu menningarhúss og stjórnsýsluhúss í miðbæ Egilsstaða. Stefnt er að því að menningar- og stjórnsýsluhúsið verður undir sama þaki norðan megin við endann á Strikinu gegnt Hótel Héraði.
Bygging menningarhússins er samstarfsverkefni ríkisins og Fljótsdalshéraðs og byggir á ákvörðun ríkistjórnarinnar um byggingu menningarhúsa í öllum landsfjórðungum. Stjórnsýsluhúsið er alfarið á verksviði sveitarfélagsins.
Nú þegar hefur verið ákveðið að fara með húsið í hönnunarsamkeppni og fyrir liggur að ráða verkefnisstjóra til þess að starfa með þeim starfshópum sem skipaðir hafa verið til að undirbúa málið.