- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Mannlíf
Þjóðleikur, stærsta leiklistarhátíð Íslands verður með uppskeruhátíð á Fljótsdalshéraði helgina 24. apríl 26. apríl. Það eru á annað hundrað börn og unglingar á aldrinum 13 ára 20 ára sem taka þátt í hátíðinni og setja upp fyrir okkur 3 verk í 14 mismunandi uppfærslum.
Það eru á annað hundrað ungmenni sem skipa 13 leikhópa af öllu Austurlandi sem taka þátt í leiklistarhátíðnni. Sett verða upp þrjú ný leikverk eftir Bjarna Jónsson, Sigtrygg Magnason og Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur Bachmann en öll leikverkin voru skrifuð sérstaklega fyrir þennan viðburð. Hver hópur hefur frumsýnt í sinni heimabyggð en ungmennin koma allt frá Vopnafirði að Höfn í Hornafirði. Námskeið voru haldin í Þjóðleikhúsinu og á Höfn í Hornafirði fyrir stjórnendur hópanna þar sem þeir nutu aðstoðar og faglegrar leiðsagnar sérfræðinga. Verkefnið er liður í Þjóðleik, leiklistarhátíð ungs folks á Austurlandi sem er samstarfsverkefni Þjóðleikhússins og Menningarmiðstöðvar Fljótsdalshéraðs. Þjóðleikur hefst með formlegri opnun og móttöku Þjóðleikhússtjóra í Minjasafni Austurlands kl. 12.00 föstudaginn 24. apríl. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, hefur boðað komu sína á opnun Þjóðleiks og kemur hann til með að fylgjast með sýningum á föstudeginum. Einnig er von á Katrínu Jakobsdóttur, menntamálaráðherra.
Höfundar og verkin þeirra
Bjarni Jónsson er höfundur verksins Ísvélin. Bjarni er leiklistarfræðingur að mennt og hafa verk eftir hann verið sett upp af fjölmörgum leikhúsum. Útvarpsleikhúsinu. Hann hefur meðal annars verið tilnefndur til Grímuverðlaunanna og Norrænu leikskáldarverðlaunanna.
Um Ísvélina
Leikritið fjallar um unglinga sem sjá um rekstur sjoppu foreldra sinna. Verkið var skrifað í upprunalegri mynd í fyrrasumar, það er að segja fyrir efnahagskreppuna. Hann sá sér því ekki annað fært en að endurskrifa stóran hluta af verkinu í ljósi atburða síðastliðið haust.
Þórdís Elva Þorvaldsdóttir Bachmann lærði leiklist við The University of Georgia í Bandaríkjunum og útskrifaðist hún þaðan árið 2003. Hún hefur starfað sem leikkona og leikskáld síðan ásamt öðrum störfum tengdu leikhúsi.
Um Dúkkulísu
Elva fékk hugmyndina af verki sínu þegar hún tók að sér ballgæslu í grunnskóla, en þar var verkefnið Hugsað um barn í fullum gangi á sama tíma.
Sigtryggur Magnason hefur verið tilnefndur til Grímuverðlaunanna en það var fyrir verkið Yfirvofandi. Sigtryggur starfaði sem fjölmiðlamaður á árum áður en er núna aðstoðamaður menntamálaráðherra.
Um Eftir lífið
Verkið gerist eftir lífið. Helgi Eysteinsson 59 ára gamall vörubílsstjóri deyr en vaknar upp á óræðum stað í líkama 15 ára stúlku. Hann kemst fljótt að því að eftir lífið eru allir unglingar.
Leikhóparnir
Verkið Eftir lífið eftir Sigtrygg Maganson verður flutt af leikhópnum Sinfóníuhljómsveit Hólmfríðar úr Hallormsstaðaskóla í leikstjórn Jóns Gunnars Axelssonr, leikhóp Grunnskóla Eskifjarðar í leikstjórn Önnu Bjargar Sigurðardóttur og Svanhvítar Yngvadóttur. Þá verður verkið flutt af leikhóp Fellaskóla í leikstjórn Jóns Vigfússonar og Eyrúnar Hrefnu Helgadóttur með fulltyngis tónlistastjórans Drífu Sigurðardóttur. Að síðustu flytur Leikfélag Verkmenntaskóla Austurlands verkið í leikstjórn Katrínar Halldóru Sigurðardóttur.
Ísvélin eftir Bjarna Jónsson verður flutt af leikhópnum Krísu frá Seyðisfirði í leikstjórn Snorra Emilssonar, leikhóps frá Grunnskóla Reyðafjarðar í leikstjórn Bryndísar Júlíusdóttur og Unnar Sveinsdóttur og leikhópnum Leikhús draumanna í leikstjórn Sigríðar S. Sverrisdóttur og Fanneyar B. Friðriksdóttur. Þá flytur leikhópurinn Lopi frá Hornafirði í leikstjórn Magnúsar J. Magnússonar verkið.
Verkið Dúkkulísa eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur Bachmann verður flutt af leikhópnum Bastarð frá Egilsstaðaskóla í leikstjórn Gunnars Heiðberg Gestssonar, leikhóp Nesskóla í Neskaupstað í leikstjórn Gríms Magnússonar og leikhóp Grunnskóla Borgarfjarðar eystra í leikstjórn Þrastar Árnasonar. Þá flytur leikhópurinn Vera frá Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar verkið og að síðustu er upptalinn leikhópurinn Lopi frá Hornafirði sem flytur verkið Dúkkulísa í leikstjórn Magnúsar J. Magnússonar.
Hér má finna ýmsar upplýsingar um Þjóðleik s.s dagskrá lokahátíðar, tímasetningar og staðsetningar viðburða:
Þjóðleikur sýningaáætlun:
Dagskrá Þjóðleiks er eftirfarandi:
Föstudagur 24. apríl
Sláturhús upp hægri
Kl. 15.00 - Eftir lífið Grunnskóli Eskifjarðar
Kl. 17.00 - Eftir lífið Leikhópur Fellaskóla
Kl. 19.00 - Eftir lífið Djúpið Leikhópur VA
Sláturhús frystiklefi
Kl. 14.00 Ísvélin Krísa Seyðisfirði
Kl. 16.00 Ísvélin Grunnskóli Seyðisfjarðar
Kl. 18.00 Ísvélin Leikhús draumanna Vopnafirði
Valaskjálf
Kl. 15.00 Ísvélin Lopi Hornafirði
Kl. 16.00 Dúkkulísa Lopi Hornafirði
Kl. 18.00 Eftir lífið Leikhópur FAS Hornafirði
Sláturhús uppi vinstri
Kl. 14.00 Dúkkulísa Grunnskóli Borgarfjarðar eystra
Kl. 16.00 Dúkkulísa Nesskóli Neskaupstað
Laugardagur 25. apríl
Sláturhús uppi hægri
Kl. 10.00 Eftir lífið Djúpið Leikhópur VA
Kl. 14.00 Eftir lífið Leikhópur FAS Hornafirði
Kl. 16.00 Dúkkulísa Bastarður Egilsstaðaskóla
Kl. 18.00 Eftir lífið Leikhópur Grunnskóla Eskifjarðar
Sláturhús frystiklefi
Kl. 11.00 Eftir lífið Sinfóníuhljómsveit Hólmfríðar Hallormsstaðaskóla
Kl. 13.00 Ísvélin Grunnskóli Reyðarfjarðar
Kl. 17.00 Ísvélin Leikhús draumanna Vopnafirði
Kl. 18.00 Ísvélin Krísa - Seyðisfirði
Valaskjálf
Kl. 10.00 Eftir lífið Leikhópur FAS Hornafirði
Kl. 14.00 Ísvélin Lopi Hornafirði
Kl. 15.00 Dúkkulísa Lopi HornafirðiSláturhús uppi vinstri
Kl. 11.00 Dúkkulísa Nesskóli Neskaupstaður
Kl. 13.00 Dúkkulísa Leikhópurinn Vera, Grunnskóli Stöðvarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar
Kl. 17.00 Dúkkulísa Grunnskóli Borgarfjarðar eystra
Sunnudagur 26. apríl
Sláturhús uppi til hægri
Kl. 11.00 Dúkkulísa Bastarður Egilsstaðaskóla
Sláturhús frystiklefi
Kl. 12.00 Eftir lífið Sinfóníuhljómsveit Hólmfríðar Hallormsstaðaskóla
Sláturhús uppi vinstri
Kl. 12.00 Dúkkulísa Leikhópurinn Vera Grunnskólar Stöðvarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar
Hægt verður að fá Þjóðleiks armband sem gildir sem aðgöngumiði á allar leiksýningar Þjóðleiks. Þau kosta aðeins 2000 krónur og er hægt að kaupa þau í Sláturhúsinu.