11.07.2008
kl. 11:09
Fréttir
Administrator
Bændur á Fljótsdalshéraði nýta sér þessa björtu daga til heyskapar. Hvar sem litið er, er verið að slá, raka eða rúlla. Sprettan hefur þó oft verið betri, enda júnímánuður síðastliðinn frekar kaldur. Í nýjasta tölublaði Bændablaðsins kemur fram að spretta er mjög misjöfn á norður- og austurlandi vegna veðurfarsins undanfarið.
Á Hafursá í Skógum voru bændur að störfum í morgun. Þó hefðbundinn búskapur sé ekki stundaður á Hafursá, hafa túnin þar verið nýtt á hverju sumri, enda sprettan þar yfirleitt góð. Þakka menn það skjólinu af skóginum og hagstæðri legu túnanna.