- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Mannlíf
Á fundi bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs, þann 16. desember síðast liðinn, voru samþykktar reglur um afslátt af fasteignaskatti til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega árið 2010. Nýjar viðmiðurnartölur verða sem hér segir:
Hámarksafsláttur verði 47.000 kr.
Lágmarksviðmiðun einstaklings verði 1.945.000 kr
Hámarksviðmiðun einstaklings verði 2.553.000 kr
Lágmarksviðmiðun hjóna verði 2.736.000 kr
Hámarksviðmiðun hjóna verði 3.466.000 kr
Reglurnar má sjá í heild sinni á heimasíðu sveitarfélagsins undir Stjórnsýsla > Samþykktir og reglur, eða hér. Rétt er að benda viðkomandi á að sækja þarf um þennan afslátt til sveitarfélagsins og senda með umsókninni afrit af skattframtali vegan tekjuársins 2009.