10.03.2008
kl. 12:23
Fréttir
Auglýst hefur verið eftir tilboðum í endurbyggingu 2. áfanga á Kaupvangi. Verkið felst í jarðvinnu vegna gatnagerðar í nyrsta hluta Kaupvangs í miðbæ Egilsstaða ásamt endurnýjun á fráveitulögnum, vatnslögnum, hitaveitulögnum, símalögnum, rafstrengjum og ljósastaurum.
Svæðið sem um ræðir er Kaupvangur frá Fagradalsbraut og inn fyrir mjólkurstöð.
Helstu magntölur eru:
Uppúrtekt 5000 m
Burðarlag 5000 m
Holræsalagnir 720 m
Vatnslagnir 940 m
Hitaveitulagnir 830 m
Gagnaveiturör 1400 m
Símarör 2200 m og símastrengir 1700 m
Rafmagnsstrengir 2000 m
Útboðsgögn er hægt að fá afhent á skrifstofu Fljótsdalshéraðs við Einhleyping í Fellabæ.
Tilboð verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 26. mars 2008 kl. 14.00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Það eru Fljótsdalshérað, Hitaveita Egilsstaða og Fella, Rarik og Míla sem óska eftir tilboðum í verkið.