Dóra Reyndal söngkennari, heldur master-class fyrir söngnemendur og söngvara í tónlistarskólanum á Egilsstöðum, laugardaginn 3. febrúar.
Námskeiðið er bæði opið fyrir nemendur tónlistarskólans sem og annað söngmenntað fólk. Þá er hverjum sem er velkomið að hlýða á þátttakendur en námskeiðið stendur frá kl. 11 - 16. Hægt er að skrá þátttöku í síma 470-0735, frá 10-12 alla virka daga.
Dóra hóf ung nám í söng og píanóleik við Tónlistarskólann í Reykjavík. Og að loknu námi við Leiklistarskóla Þjóðleikhússins bjó hún erlendis í tíu ár. Á þessum tíu árum nam hún söng við óperudeildina í Konservatorium Bremen í þrjú ár. Eftir langa fjarvist erlendis fluttist hún heim aftur og eftir nokkurra ára hlé hóf hún aftur nám en nú við Söngskólann í Reykjavík og útskrifaðist þaðan sem söngkennari vorið l980 (LRSM-próf) Haustið l980 hóf hún kennslu við Söngskólann í Reykjavík og við Kennaraháskólann í Reykjvaík (tónlistardeild).
Síðast liðin tíu ár hefur Dóra starfað sem aðstoðarkennari hjá Lorraine Nubar (Juillard New York) á alþjóðlegu söngnámsskeiði í Nice í S.-Frakklandi. Nokkur sumur hélt hún einnig söngnámskeið í Svarfarðardal með Dario Valiengo en hann starfar sem meðleikari við Mozarteum í Salzburg, Austurríki.
Dóra hefur haldið fjölda einsöngstónleika og starfar einnig sem prófdómari í söng á Íslandi.