Eins og íbúar Fljótsdalshéraðs hafa eflaust tekið eftir hefur verið unnið að því að koma fyrir lýsingu í Selskóginum. Á morgun, þriðjudaginn 18. desember kl. 17.00, verður kveikt á ljósunum við athöfn og er íbúum Fljótsdalshéraðs boðið á Ljósahátíð í því tilefni.
Dagskrá Ljósahátíðarinnar er eftirfarandi:
Kl. 17:00 17:30 við bílastæðið við Selskóg Eiríkur B. Björgvinsson bæjarstjóri og Ástvaldur Erlingsson frá Rarik kveikja á lýsingunni.
Kl. 17:30 19:00 við útileikhúsið í skóginum Sagðar verða sögur og sungið. Boðið verður upp á ketilkakó og pylsur sem hver og einn getur grillað yfir eldi.
Íbúar er hvattir til að koma með kyndla, vasaljós eða luktir. Jólasveinninn mun svo koma í heimsókn með eitthvað gott í pokahorninu fyrir börnin.