28.06.2007
kl. 09:32
Fréttir
Í fyrradag, 26. júní, var undirritaður samningur milli Jasshátíðar Egilsstaða á Austurlandi og Alcoa Fjarðaáls um stuðning þess síðarnefnda við jasshátíðina. Samningurinn er til þriggja ára.
Gert er ráð fyrir að Alcoa-Fjarðaál greiði kr. 300.000 á þessu ári en kr. 400.000 á því næsta og kr. 500.000 árið 2009. Þá mun Alcoa-Fjarðaál auglýsa hátíðina á auglýsingum sínum næstu tvö árin. Jasshátíðin mun láta tuttugu aðgöngumiða til Alcoa-Fjarðaáls á hverju ári. Samningurinn er með ákvæði um endurskoðun ef hátíðin mun vaxa mikið á næstu árum.
Samningurinn var undirritaður af þeim Jóni Hilmari Kárasyni, framkvæmdastjóra Jasshátíðar Egilsstaða á Austurlandi og Ruth Elfarsdóttur, framkvæmdastjóra fjármála hjá Alcoa Fjarðaáli, í kaffihúsi KHB á Egilsstöðum. Jón Hilmar sagði að samningur sem þessi væri hátíðinni mikill styrkur og lýsti mikilli ánægju með hann.