Heimasíða fyrir íþróttamannvirkin í gagnið
03.04.2008
kl. 12:01
Fréttir
Ný heimasíða með upplýsingum um þjónustu íþróttamannvirkja Fljótsdalshéraðs hefur verið tekin í notkun. Þar má finna upplýsingar um viðburði sem fram fara á hinum ýmsu stöðum á vegum sveitarfélagsins. Á heimasíðunni er einnig að finna upplýsingar um opnunartíma, gjaldskrár, fréttir og ýmislegt annað sem auðvelda á aðgengi íbúa sveitarfélagsins eða ferðamanna að upplýsingum um starfið í íþróttamannvirkjunum.
Forstöðumaður íþróttamannvirkja Fljótsdalshéraðs er Hreinn Halldórsson og er hann jafnframt umsjónarmaður heimasíðunnar. Allar ábendingar um atriði sem færu vel á heimasíðunni eða má bæta eru vel þegnar.