Heimasíða fyrir íþróttamannvirkin í gagnið

Ný heimasíða  með upplýsingum um þjónustu íþróttamannvirkja Fljótsdalshéraðs hefur verið tekin í notkun. Þar má finna upplýsingar um viðburði sem fram fara á hinum ýmsu stöðum á vegum sveitarfélagsins.

Á heimasíðunni er einnig að finna upplýsingar um opnunartíma, gjaldskrár, fréttir og ýmislegt annað sem auðvelda á aðgengi íbúa sveitarfélagsins eða ferðamanna að upplýsingum um starfið í íþróttamannvirkjunum.

Forstöðumaður íþróttamannvirkja Fljótsdalshéraðs er Hreinn Halldórsson og er hann jafnframt umsjónarmaður heimasíðunnar. Allar ábendingar um atriði sem færu vel á heimasíðunni eða má bæta eru  vel þegnar.

Slóðin er: http://www.fljotsdalsherad.is/ithrottamannvirki