13.03.2007
kl. 16:00
Fréttir
Vegna veikinda er hádegisfundi sem vera átti að Hótel Héraði á morgun, miðvikudaginn 14. mars, frestað um óákveðinn tíma. Næsti hádegisfundur atvinnumálanefndar verður því miðvikudaginn 21. mars eins og auglýst hefur verið.
Dagskrá næstu hádegisfunda er eftirfarandi:
21. mars - Framtíðin í verktakastarfsemi Charlotte Sigurðardóttir, Malarvinnslunni og Sigurður Grétarsson, Héraðsverki
28. mars Landshlutamiðstöðin Egilsstaðir/Fellabær Bjarni Reynarsson, Land-ráði
Á hverjum fundi verða fluttar framsögur en síðan eru umræður.
Fundirnir verða haldnir á Hótel Héraði og hefjast kl. 12.00 og lýkur kl. 12.55.
Hægt er að kaupa sér súpu og brauð meðan á fundi stendur.