Eitt af veggspjöldunum – ég árið 1918 / ég árið 2018
Þess hefur víða og með margvíslegum hætti verið minnst á þessu ári að 100 ár eru liðin síðan Ísland varð fullvalda ríki. Hátíðardagskrá verkefnisins „Austfirskt fullveldi - sjálfbært fullveldi?“ verður í Menntaskólanum á Egilsstöðum laugardaginn 1. desember frá klukkan 13 til 15.
Dagskrá:
- Kór – Kammerkór Egilsstaðakirkju/Héraðsdætur
- Setning - Signý Ormarsdóttir
- Tónlistaratriði – Soffía Mjöll Thamdrup og Karen Ósk Björnsdóttir
- Um fullveldishugtakið – Jónas Reynir Gunnarsson
- Kór – Kammerkór Egilsstaðakirkju
- Upplestur – Ása Þorsteinsdóttir
- Tónlistaratriði – Hljómsveitin Dúkkulísurnar
MENNTASKÓLINN Í FULLVELDISGÍR
Hátíðarsalur:
- Austfirskt fullveldi – sjálfbært fullveldi?“ Sýningar frá söfnum í fjórðungnum
- Kaffiveitingar – kleinu- og pönnukökubakstur
Kennsluhús ME:
- Græn sýning umhverfisnefndar - stofur 24 og 25
- Brauðmót - Steinrún Ótta Stefánsdóttir og Lára Vilbergsdóttir - anddyri
- Meistaraverkefni í sjálfbærri þróun til sýnis – anddyri
- Listasmiðja listanemenda – Heimsmarkmarkmið - teiknimyndasmiðja – niðri
- Græn jól og föndur – uppi
- Grímur framtíðarsýn – sýning grunnskólanema af Héraði – niðri
- Veggspjöld frá nemendum - stofa 28
- Veggspjöld – ég árið 1918 / ég árið 2018 – stofa 29
„Austfirskt fullveldi - sjálfbært fullveldi?“ er samstarfsverkefni átta austfirskra mennta-, menningar- og rannsóknastofnana sem hafa tekið höndum saman til að skoða á nýstárlegan hátt austfirskt fullveldi, sjálfbærni og tengslin þar á milli.
Nánari upplýsingar um verkefnið á https://www.facebook.com/events/2706979772649349/ og www.austfirsktfullveldi.is