Þriðjudaginn 18. febrúar var haldinn stofnfundur félagsins Þjónustusamfélagið á Héraði.
Aðild að félaginu geta átt öll fyrirtæki sem starfa við þjónustu, ferðaþjónustu og verslun á Héraði og eru með tilskilin leyfi.
Markmið félagsins eru að:
- fjölga viðskiptavinum verslunar-, þjónustu- og ferðaþjónustufyrirtækja á Héraði
- lengja dvöl þeirra gesta sem hverju sinni heimsækja svæðið,
- lengja ferðamannatímann þannig að hann nái yfir sem stærstan hluta ársins,
- hvetja til aukinna gæða og fagmennsku í starfsemi félagsaðila,
- efla Egilsstaði enn frekar sem verslunar- og þjónustumiðstöð,
- efla innbyrðis tengsl og þekkingu fyrirtækja á Héraði.
- hvetja félagsaðila og sveitarfélög til að fegra og bæta ásýnd Egilsstaða og Héraðsins alls
Í stjórn og varastjórn félagsins voru kosin eftirfarandi og er gert ráð fyrir að hún starfi fram að aðalfundi sem fyrirhugaður er í lok mars:
- Sigrún Hólm Þórleifsdóttir, formaður
- Ívar Ingimarsson
- Þráinn Lárusson
- Heiðar Róbert Birnuson
- Alda Harðardóttir
- Markús Eyþórsson
- Guðbjörg Björnsdóttir
- Guðmundur Ólafsson
Hægt er að skrá fyrirtæki í félagið með því að fylla út eyðublað sem er hér.
Nánari upplýsingar veitir Sigrún Hólm Þórleifsdóttir í síma 866 4995.