25.05.2007
kl. 16:13
Fréttir
Frá komandi hausti verða allir 5 ára leikskólanemendur í skólahverfi Grunnskólans Egilsstöðum og Eiðum saman í leikskólanum Tjarnarlandi. Elstu nemendur í leikskólanum Skógarlandi flytjast því á Tjarnarland um miðjan ágúst.
Tilgangur þessara breytinga er meðal annars sá að nemendurnir kynnist innbyrðis áður en þeir hefja nám í grunnskólanum. Nálægðin við grunnskólann gefur aukna möguleika á samvinnu skólastiganna auk þess að auðvelda samstarfið.
Í byrjun júní verður kynningarfundur í leikskólanum Tjarnarlandi fyrir foreldra þeirra barna sem hefja nám á 5 ára deildinni í haust. Bréf þess efnis mun bersat foreldrum innan skamms.