Yfirlýsing vegna notkunar á ólöglegum frammistöðubætandi efnum

Myndin er af myndavefnum pexels.com
Myndin er af myndavefnum pexels.com

Héraðsþrek og CrossFit Austur skrifa undir yfirlýsingu þar sem notkun stera og annarra ólöglegra frammistöðubætandi efna er fordæmd.

Í vikunni var send út yfirlýsing þar sem hópur fyrirtækja í heilsu- og líkamsræktarstarfsemi þar sem notkun frammistöðubætandi efna er fordæmd. Vilja Héraðsþrek og CrossFit Austur, með því að kvitta undir yfirlýsinguna, gefa þau skýru skilaboð að notkun stera og annarra ólöglegra efna sé ekki það sem heilsurækt og heilsuefling á Fljótsdalshéraði stendur fyrir.

Hér er yfirlýsingin í heild sinni:
Það er ljóst að notkun stera og annarra ólöglegra frammistöðubætandi efna hefur aukist mikið síðustu ár. Það er því á okkar ábyrgð að viðurkenna vandann og bregðast við með ákveðnum aðgerðum.
Þeir notendur sem sjálfir grípa til slíkra örþrifaráða blekkja ekki aðeins sjálfa sig heldur einnig aðra þá er vilja stunda heilbrigðan lífsstíl. Notkun stera og annarra ólöglegra frammistöðubætandi efna ýtir undir brenglaða líkamsímynd og gefur ungu fólki röng skilaboð og óraunhæfar fyrirmyndir. Því viljum við sameinast um að draga skýr mörk og senda rétt skilaboð.
Eftirfarandi íþróttafélög og líkamsræktarstöðvar fordæma hverskyns notkun stera og ólöglegra frammistöðubætandi efna við þjálfun og lýsa því jafnframt yfir að notkun slíkra efna verður ekki liðin innan þeirra húsakynna né í keppnum á þeirra vegum.

Mjölnir
Hreyfing
CrossFit Akureyri
CrossFit Reykjavík
CrossFit XY
Sparta
Reebok Fitness
Metabolic
Héraðsþrek, Fljótsdalshéraði
CrossFit Austur
CrossFit Hengill
CrossFit Katla