Vinnuskólinn frumsýnir leikverk

Frú Norma – leikhús, í samvinnu við Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs og Vinnuskólann á Fljótsdalshéraði frumsýnir á sunnudaginn 3DM, dans-/leikhúsverk sem veltir sér upp úr fegurð starfseminnar sem áður fór fram í Sláturhúsinu - Menningarsetri.

3DM er dansleikhúsverk unnið með hópi 13 - 16 ára unglinga úr vinnuskóla Fljótsdalshéraðs.
Í verkinu eru sjónarhorn fjögurra mismunandi listrænna stjórnenda á sláturhúsið fléttuð saman í eina heild. Verkið er bundið saman af texta Jónasar Reynis Gunnarssonar, ungs skálds af Fljótsdalshéraði.

Leikstjórn og hreyfiferli er í höndum Péturs Ármannssonar, Jóns Vigfússonar, Halldóru Malinar Pétursdóttur og Guðjóns Sigvaldasonar. Í verkinu er unnið með sögu og hlutverk sláturhússins, sem í dag er nýtt undir töluvert aðra starfsemi en áður var, en í dag eru þar til húsa vegaHúsið -  menningarsetur ungs fólks, Sláturhúsið - Menningasetur og frú Norma - leikhús.

Leikarar í 3DM eru:
Baldvin Orri Smárason
Egill Magnússon
Egill Örn Þórðarson
Hans Hektor Hannesson
Inga Lind Clausen Bjarnadóttir
Katla Einarsdóttir
Kristrún Anna Borgþórsdóttir
Lísa Mist Smáradóttir
Sandra Ester Jónsdóttir
Ýmir Steinn Árnason

Sýningar verða þrjár:
Sunnudag 20. júlí klukkan 20:00 - Frumsýning Þriðjudag 22. júlí klukkan 20:00 Fimmtudag 24.júlí klukkan 20:00 - LOKASÝNING

Miðapantanir í síma 471-1166 og norma@frunorma.is