Vinnuskóli Fljótsdalshéraðs

Opnað hefur verið fyrir umsóknir nemenda í Vinnuskóla Fljótsdalshéraðs. Vinnuskólinn er opinn ungmennum, fæddum 1999-2001.

Nemendur sem óska eftir vinnu verða að sækja um í gegnum Íbúagáttina sem allir, 18 ára og eldri, geta fengið aðgang að. Foreldrar og/eða forráðamenn verða því að aðstoða nemendur við að skila inn umsóknum.
Umsóknafrestur er til og með 10. maí nk.

Verkstjóri Vinnuskóla Fljótsdalshéraðs