Vilja auka umferð um Egilsstaðaflugvöll

Á fundi bæjaráðs Fljótsdalshéraðs þann 30. maí var samþykkt samhljóða að taka undir bókun atvinnumálanefndar um að hvetja hagsmunasamtök í ferðaþjónustu og yfirvöld flug- og ferðamála á Íslandi til að vinna að því að Egilsstaðaflugvöllur verði enn frekar nýttur sem millilandaflugvöllur og hann verði þannig ein af megingáttum flugfarþega inn og út úr landinu.

Bókun nefndarinnar er eftirfarandi:

„Undanfarin ár hefur ferðamönnum til Íslands fjölgað hratt og stöðugt. Allt bendir til þess að sú þróun haldi áfram. Í ljósi þess hvetur atvinnumálanefnd Fljótsdalshéraðs hagsmunasamtök í ferðaþjónustu, flugrekstraraðila og yfirvöld flug- og ferðamála á Íslandi til að vinna að því að Egilsstaðaflugvöllur verði enn frekar nýttur sem millilandaflugvöllur og hann verði þannig ein af megingáttum flugfarþega inn og út úr landinu. Stöðug fjölgun á erlendum ferðamönnum til landsins kallar á skynsamlega dreifingu þeirra, m.a. til að sporna við of miklu álagi á viðkvæmar náttúruperlur á suðvesturhorni Íslands svo og til að stuðla að sem kraftmestum atvinnurekstri ferðaþjónustunnar um allt landið. Atvinnumálanefnd bendir jafnframt á að með hækkandi eldsneytisverði og sífellt auknum umhverfiskröfum þá hljóti að vera hagkvæmt að horfa til sem stystu flugleiða milli Evrópu og Íslands. Með þetta að leiðarljósi telur atvinnumálanefnd það vera þjóðhagslega skynsamlegt að nýta það mannvirki sem flugvöllurinn á Egilsstöðum er, til enn frekara millilandaflugs, samhliða Keflavíkurflugvelli.“