Viðtalstími bæjarfulltrúa á fimmtudag

Næsti viðtalstími bæjarfulltrúa Fljótsdalshéraðs verður haldinn í fundarsal bæjarstjórnar að Lyngási 12, Egilsstöðum fimmtudaginn 10. október frá klukkan 16.30 til 18.30.

Þá gefst bæjarbúum kostur á að hitta bæjarfulltrúana Sigrúnu Harðardóttur og Ragnhildi Rós Indriðadóttur, bera upp erindi, fyrirspurnir og ræða þau málefni sem hæst ber hverju sinni.

Bæjarfulltrúar skrá niður minnispunkta sem fara fyrir bæjarráð til úrvinnslu.