Viðtalstímar í Samfélagssmiðjunni 19. desember

Kjörnir fulltrúar og starfsfólks stjórnsýslu Fljótsdalshéraðs verða til viðtals í Samfélagssmiðjunni að Miðvangi 31 (þar sem Fóðurblandan var), fimmtudaginn 19. desember, milli klukkan 12 og 18.

Klukkan 12 til 15 – Stefán Bogi Sveinsson, forseti bæjarstjórnar og formaður náttúruverndarnefndar, og Bylgja Borgþórsdóttir verkefnastjóri íþrótta-, tómstunda- og forvarnamála. Einnig verður fulltrúi ungmennaráðs til viðtals.

Klukkan 15 til 18 – Björg Björnsdóttir, bæjarfulltrúi og fulltrúi í fræðslunefnd, og Guðlaugur Sæbjörnsson fjármálastjóri.

Samfélagssmiðjunni er ætlað að vera vettvangur íbúa sveitarfélagsins til að koma sínum hugmyndum og athugasemdum á framfæri.