Viðtalstímar bæjarstjórnar

Næsti viðtalstími bæjarfulltrúa Fljótsdalshéraðs verður haldinn í fundarsal bæjarstjórnar að Lyngási 12, Egilsstöðum þann 13. apríl frá klukkan 16.30 til 18.30.

Þá gefst bæjarbúum kostur á að hitta bæjarfulltrúana Stefán Boga Sveinsson og Árna Kristinsson, bera upp erindi, fyrirspurnir og ræða þau málefni sem hæst ber hverju sinni. Bæjarfulltrúar skrá niður minnispunkta sem fara fyrir bæjarráð til úrvinnslu.