Viðtalstímar bæjarfulltrúa Fljótsdalshéraðs

Næsti viðtalstími bæjarfulltrúa verður fimmtudaginn 8. maí. Þá taka Karl Lauritzson og Stefán Bogi Sveinsson á móti íbúum sveitarfélagsins og erindum þeirra í fundarsal bæjarstjórnar að Lyngási 12, Egilsstöðum frá kl. 16.30 - 18.30.

Í viðtalstímum gefst bæjarbúum kostur á að hitta fulltrúa sína í bæjarstjórn, bera upp erindi, fyrirspurnir og ræða þau málefni sem hæst ber hverju sinni. Bæjarfulltrúar skrá niður minnispunkta sem fara fyrir bæjarráð til úrvinnslu.