Viðburðir um hátíðarnar

Úr myndabanka pexels.com
Úr myndabanka pexels.com

Hið árlega jólaball sem haldið er á vegum Lionsklúbbsins Múla og Fljótsdalshéraðs verður í íþróttahúsinu í Fellabæ fimmtudaginn 27. desember klukkan 17 til 19.

Áramótabrennan sem haldin er í samstarfi Björgunarsveitarinnar og Fljótsdalshéraðs verður á Egilsstaðanesi 31. desember. Kveikt verður í brennunni klukkan 16:30 og flugeldasýningin hefst klukkan 17:00.

Þrettándagleði og álfabrenna sem haldin er í samstarfi Hattar og Fljótsdalshéraðs verður í Tjarnargarðinum á Egilsstöðum 6. janúar. Skrúðganga og blysför verður frá íþróttamiðstöðinni klukkan 16:00, en kveikt verður í brennunni um klukkan 16:15.