Vetrarfjör á Héraði

Upplýsingar um námskeið og tómstundastarf fyrir börn og unglinga sem haldin verða nú í vetur á vegum nokkurra aðila eru aðgengilegar á heimasíðu Fljótsdalshéraðs. Með því að smella á borðann "Vetrarfjör á Héraði", hér á heimasíðunni er hægt að nálgast yfirlit yfir námskeiðin, eða með því að smella hér.

Þeir sem bjóða upp á tómstundastarf og námskeið fyrir börn og unglinga og eru ekki á þessu yfirliti, geta sent upplýsingar um þau til odinn@egilsstadir.is.