Vertu með í að móta Austurland til framtíðar

Nú liggur fyrir könnun sem ætluð er gestum og íbúum um áfangastaðinn Austurland. Ferðamálasamtök Austurlands höfðu frumkvæði að því fyrir að setja af stað verkefni um hönnun áfangastaðarins Austurlands fyrir rúmu ári síðan. Verkefninu er stýrt af Austurbrú í samvinnu við FAUST og öll sveitarfélögin á Austurlandi.

Verkefnið fjallar um að þróa Austurland sem búsetukost fyrir fólk, fjölskyldur og fyrirtæki. Samhliða þeirri vinnu verður „Áfangastaðurinn Austurland“ mótaður í samstarfi hagsmunaaðila,íbúa og sveitarfélög á Austurlandi. Aðferðafræði hönnunar er lögð til grundavallar í vinnunni en hún byggir á rannsóknarvinnu og samtali við íbúa og notendur (destination design).

Áfangastaðurinn Austurland er þriggja ára verkefni og lokahnykkur í fyrsta hluta verkefnisins er að safna upplýsingum frá íbúum og ferðamönnum á svæðinu. Íbúar Austurlands eru hvattir til að taka þátt í mótun áfangastaðarins og geta gert það með því að svara spurningalista sjá hlekk hér fyrir neðan.
https://www.surveymonkey.com/r/MR8SGJ2

Í haust verður svo haldin vinnustofa þar sem hagsmunaaðilum verður boðin þátttaka og verkefnið og niðurstöður vinnustofu kynntar ítarlega fyrir íbúum fjórðungsins.